Það verður (skóla)skákveisla helgina 13. og 14 apríl 2024. Þá fara fram tvö skólaskákmót í Rimaskóla. Íslandsmót barnaskólasveita (4.-7. bekkur) fer fram laugardaginn, 13. apríl og Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) fer fram sunnudaginn, 14. apríl.

Athygli er vakin á því að yngri nemendur geta mögulega teflt á báðum mótunum.  

ÍSLANDSMÓT BARNASKÓLASVEITA (4.-7 BEKKUR)

Mótið fer fram laugardaginn, 13. apríl í Rimaskóla og hefst kl. 13. Mæting kl. 12:45. Tefldar verða átta umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Mótinu ætti að vera lokið um kl. 17.

Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 4.–7. bekk en þó er nemendum úr í 1.–3. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti barnaskólasveita sem fram fer í Noregi í október.

Lindaskóli varð Íslandsmeistari barnaskólasveita í fyrra. Sjá nánar um mótið hér.

Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 16, fimmtudaginn 11. apríl. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.

ÍSLANDSMÓT GRUNNSKÓLASVEITA (8.-10. BEKKUR) 

Mótið fer fram sunnudaginn 14. apríl í Rimaskóla og hefst kl. 13. Mæting kl. 12:45. Tefldar verða sjö umferðir eftir svissneska kerfinu. Umhugsunartími verður 10+2  mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Áætlað er að mótinu ljúki um kl. 17.

Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.-10. bekk en þó er nemendum úr í 1.–7. bekk leyfilegt að tefla með en þá eingöngu í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn.

Þátttökugjöld kr. 10.000 kr.- á  sveit. Þó ekki hærra en 20.000 kr. á skóla. Frítt er fyrir sveitir utan höfuðborgarsvæðisins.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verðlaunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.

Íslandsmeistararnir hljóta rétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Noregi í október.

Vatnsendaskóli varð Íslandsmeistari grunnskólasveita í fyrra. Sjá nánar um mótið hér.

Skráningu skal lokið í síðasta lagi kl. 16, fimmtudaginn 11. apríl. Ekki er hægt að skrá sveitir eftir þann tíma.