Margeir Pétursson að tafli.

Ólympíuskákmótið hefst á morgun 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki.

Að lokum kynnum við leiks Margeir Pétursson. Hann var upphaflega liðssjóri en þegar Vignir Vatnar greindist með Covid var ákvörðun tekin um að hann myndi vera teflandi liðsstjóri!

Nafn

Margeir Pétursson

Félag

TR

Aldur

62

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Tigran Petrosyan og Maria Muzychuk

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?

Er að rannsaka byrjanir sem gætu komið liðinu til góða, með aðra þætti þá held ég mínum venjulegu háttum

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

70

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?  11 sinnum sem keppandi, einnig var ég á Majorca 2004, Bakú 2016 og Batumi 2018 sem áhorfandi mér til gamans

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Hef ekki hugmynd

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Úkraína í báðum flokkum!

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Tíðindalaust á vesturvígstöðvunum

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Nei

Þegar ég vann Tseskovsky í Dubai 1986 og Sovétríkin (með bæði Kasparov og Karpov) – Ísland endaði 2-2

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Bara fínn, ef ekki of sterkur

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Baryshpoletz

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Mahatma Gandhi

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Emanuel Lasker, mjög fjölfróður, Mikhail Tal (fyndinn og uppátækjasamur – þetta yrði reyndar endurtekning).  Vishy Anand (það væri líka endurtekning, en ég er enn með móral eftir að hafa boðið honum í mat á Íslandi 1991 og átti ekkert kál.  Hann varð að borða fisk og hækkaði eftir það snarlega um 100 stig)

Ólympíufararnir

- Auglýsing -