2007 – 2008

Íslandsmót skákfélaga 2007-2008

Taflfélag Reykjavíkur varð Íslandsmeistari skákfélaga 2008 eftir æsispennandi úrslitaviðureign við fráfarandi Íslandsmeistara, Taflfélagið Helli. TR hafði haft forystu í hálfleik. Hellismenn þurftu að vinna 5-3 og um tíma virtist það geta gerst. TR-ingar höfðu fengið liðsstyrk í Helga Áss Grétarssyni stórmeistara fyrir lokaátökin og skipt út fyrirliðanum. Liðsmenn TR sýndu mikla seiglu á lokametrunum og unnu viðureignina 4½-3½ og hampa því Íslandsmeistaratitlinum.

Bolvíkingar sigruðu í 2. deild, KR-ingar í þeirri þriðju og b-sveit Bolvíkinga í þeirri fjórðu.

Hægt er að skoða myndir frá mótinu með því að smella á myndina af Íslandsmeisturum TR hér til hliðar. Nánari úrslit má sjá hér að neðan.

1. deild

2. deild

3. deild

4. deild