2008 – 2009

Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga 2008-09 fer fram á Akureyri helgina 20. –  21. mars 2009. Skáksambandið framfylgir þar stefnu sinni um, að halda fleiri skákmót sambandsins úti á landsbyggðinni og samgleðst jafnframt Skákfélagi Akureyrar, sem fagnaði 90 ára afmæli

 
Einstök úrslit og tölfræði
Spá við upphaf móts
Pistill eftir fyrri hluta
Spá í hálfleik
Staðan í hálfleik
3. umferð
2. umferð
1. umferð
Myndaalbúm

sínu hinn 10. febrúar s.l.

5. umferð: Föstudagur kl. 20.000
6. umferð: Laugardagur kl. 11.00
7. umferð: Laugardagur kl. 17.00

Íslandsmót skákfélaga hefur nokkrum sinnum áður verið haldið á Akureyri og hefur mótshald heimamanna verið afar vandað og glæsilegt.

Höfuðborgarbúum og nærsveitungum finnst jafnan mjög gaman að tefla fjarri heimahögum í góðum hópi. Þá reynslu eiga þeir, sem áður hafa teflt í Íslandsmóti skákfélaga utan höfuðborgarsvæðisins. Síðast gerðist það í Eyjum 2001.

Akureyri er mjög sérstakur og skemmtilegur bær með merkilega skáksögu. Það voru Akureyringar, sem gengust fyrir stofnun Skáksambands Íslands, og hafa frá því við upphaf 20. aldar rekið öfluga og uppbyggjandi skákstarfsemi.

Ljóst er, að skákmenn bíða spenntir eftir seinni hálfleik í Íslandsmóti skákfélaga 2008-2009 á Akureyri. Megi besta liðið vinna.

Gens una sumus.