Íslandsmót grunnskóla – stúlknaflokkur fer fram í Skákhöllinni, Faxafeni 12, laugardaginn 30. janúar nk. og hefst kl. 14. Þær breytingar hafa verið á keppninni frá undanförnum árum að teflt er á þremur borðum – en ekki fjórum.
Allir grunnskólar mega taka þátt!
Teflt verður í þremur flokkum.
Fyrsti og annar bekkur.
Fimm umferðir með tímamörkunum 4+2.
Þriðji til fimmti bekkur.
Sex umferðir með umhugsunartímanum 6+2.
Sjötti til tíundi bekkur.
Sex umferðir með umhugsunartímanum 8+2
Skráning
Skráningafrestur er til 28. janúar kl. 16.
Umferðafjöldi getur breyst með tilliti til fjölda þátttökuliða. Keppendur geta teflt upp fyrir sig, þ.e. með eldri sveit síns skóla. Í hverri sveit skulu vera þrjú borð. Varamenn í hverri sveit mega vera allt að tveir.
Þátttökugjald á sveit: 7.500 kr. Hámark 15.000 kr. á skóla. Frítt fyrir sveitir af landsbyggðinni.