Ólympíuskákmótið verður sett í Búdapest 10. september nk. og stendur til 22. september. Ísland sendir tvö lið til keppni og fram að móti kynnum við einn fulltrúa á dag. Nú kynnum við til leiks nýliðann Hilmi Freyr Heimisson, sem er að tefla á sínu fyrsta Ólympíuskákmóti.
Nafn
Hilmir Freyr Heimisson
Kasparov eða Carlsen?
Carlsen
Félag,
Breiðablik
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Augljóslega skák, sofa vel og fara í gym
Hvaða Ungverjar hafa teflt heimsmeistaraeinvígi í skák?
Judit Polgar allavegana
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Man. City?
Veit ekki
Hvaða Ungverji var upphafsmaður Búdapest-afbrigðisins í lok 19. aldar? Manstu eftir einhverjum Íslendingum sem hafa teflt það í gegnum tíðina?
Veit ekki
Bókin á náttborðinu?
Tafl dæmi og skáklok
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður fyrsta skiptið
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Ekki hugmynd
Hefurðu teflt á First Saturday-móti – eða öðru móti í Ungverjalandi?
Já tvisvar
Hvernig finnst þér ungverks gúllassúpa?
Ekki smakkað
Hvaða Íslendingur tapaði fyrir tveimur Polgar-systranna á Reykjavíkurskákmótinu 1988?
Hól
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Örugglega Indland þeir eru með marga sterka unga þessa dagana og fyrir kvenna held ég Bulgaría en þau urðu Evrópumeistarar kvenna í Svartfjallalandi 2023 í nóvember
Donald eða Kamala?
Hlutlaus
Besta skák sem þú hefur teflt á Ólympíuskákmóti eða annarri liðakeppni
Örugglega sigurinn móti Tor Frederik Kassen en við unnum Norðmenn þá
Ding eða Gukesh?
Gukesh
Sterkasti skákmaður, lífs eða liðinn, af ungverskum ættum? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Hlýtur að vera Peter Leko
Helsta fyrirmynd í skák og af hverju?
Hef enga fyrirmynd þessa dagana en ég leit upp til marga á yngri árum
Við höldum svo áfram að kynna Ólympíufarinn – einn á dag!
- GM Vignir Vatnar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Guðmundur Kjartansson – opinn flokkur
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Helgi Áss Grétarsson – opinn flokkur
- IM Hilmir Freyr Heimisson – opinn flokkur
- GM/FST Helgi Ólafsson – liðsstjóri
- WGM Lenka Ptácníková – kvennaflokkur
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – kvennaflokkur
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – kvennaflokkur
- Iðunn Helgadóttir – kvennaflokkur
- Guðrún Fanney Briem – kvennaflokkur
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson – liðsstjóri
- IA/FM Róbert Lagerman – skákstjóri
- Gunnar Björnsson – FIDE-dindill














