Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir

Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!

Í dag kynnum við til leiks Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur sem er að fara á sitt sjötta ólympíuskákmót.

Nafn

Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir

Félag

Taflfélag Garðabæjar

Aldur

29 ára

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Karpov og Ju Wenjun

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Ég hef fókuserað á miðtaflstæknina og reikninga undanfarna mánuði, og núna vikurnar fyrir mót vinn að því að fríska upp á byrjanirnar. Að öðru leyti reyni ég að passa uppá góðan svefn og að minnka stress, til að vera tilbúin í slaginn á Indlandi 

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

100?

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta mót verður sjötta ólympíumótið held ég, hef ekki farið síðan 2016

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Hverjir eru ManU? 🙂 

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Indland vinni tvöfalt

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Ég hef verið að horfa á nýjustu áströlsku Masterchef seríuna

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:

Skák frá Baku á móti Sarah Longson (England) sem ég vann og tryggði liðinu sigur

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Frábær! Í hádegismat + kvöldmat, í tvær vikur í röð verður samt áskorun

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Ætli Dvorkovich verði ekki endurkjörinn

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Hmm… Ghandi

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Judith Polgar, Dubov, og Gunnari Björnssyni (til að halda uppi samræðunum)

Ólympíufararnir

- Auglýsing -