Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki.
Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!
Reynsluboltinn Hannes Hlífar Stefánsson, sem fagnar fimmtugsafmæli í dag, er að sjálfsögðu kynntur til leiks í dag!
Nafn
Hannes
Félag
Garðabær
Aldur
49
Uppáhaldsskákmaður og skákkona?
Kasparov og Judit Polgar.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Hef verið að tefla mikið í sumar tók þátt í skákmótum í Póllandi og Tékkandi, reyni líka að stunda líkamsrækt þegar tími gefst til.
Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Giska á að Indverjar eigi um 80?
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Hef farið síðan 1992 þá er bara að telja!
Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?
Nei.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Usa í KK giska Pólland í kvenna?
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Horfði síðast á How to change you Mind þáttaröð um ofskynjunarefni mæli með þeim!
Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?
Carlsen mun tefla með fýlusvip og verður svo leiður að hann leikur af sér drottningunni í síðustu skákinni sem verður til þess að Nepo verður krýndur nýr heimsmeistari!
Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:
Það eru nokkrar vann einu sinni Adams það var í Bled man ekki árið!
Hvítur á leik
Hvernig finnst þér indverskur matur?
Indverskur matur er mjög góður!
Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?
Hef ekki fylgst með kosningunni ætlar Peter Heine að gefa kost á sér?
Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?
Horfði á heimildarmynd um Gandhi fyrir nokkru.
Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?
Capablanca, Em Lasker, Alekjín væri gaman að segja þeim frá nýjustu tegorínum!
Ólympíufararnir
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (opinn)
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (opinn)
- GM Helgi Áss Grétarsson (opinn)
- IM Vignir Vatnar Stefánsson (opinn)
- GM Guðmundur Kjartansson (opinn)
- WGM Lenka Ptácníková (kvenna)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (kvenna)
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (kvenna)
- Tinna Kristín Finnbogadóttir (kvenna)
- WIM Lisseth Acevedo Méndez (kvenna)
- GM Margeir Pétursson (liðsstjóri)
- FM Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)
- IA Omar Salama (skákstjóri)
- Gunnar Björnsson (FIDE-dindill)
















