Þungt hugsi Hjörvar Steinn við taflið í Riga. — Morgunblaðið/Heimasíða FIDE

Ólympíuskákmótið hefst 29. júlí í Chennai á Indlandi. Ísland sendir lið í opnum flokki sem og í kvennaflokki. Fram að móti munum við fjalla um ólympíufarana – einn á dag!

Í dag kynnum við til leiks Hjörvar Stein Grétarsson sem teflir á sínu fimmta ólymíuskákmóti

Nafn

Hjörvar Steinn Grétarsson

Félag

Taflfélag Garðabæjar og Manchester United

Aldur

Enn undir þrítugu!

Uppáhaldsskákmaður og skákkona?

Magnus Carlsen og Hou Yifan.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum, líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?

Megináherslan hefur verið á andlega hluta undirbúningsins þar sem jákvætt hugarfar er í forgangi. Til að stuðla að því hef ég verið að fara í kalda potta. Sem fyrr hef ég síðan lagt mikla áherslu á góðan svefn en ég tel það vera grunninn að líkamlegri og andlegri heilsu.

Hvað eiga Indverjar marga stórmeistara? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

Ekki grænan en þeim fer sífellt fjölgandi 😊.

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Þetta verður mitt fimmta ólympíuskákmót

Mun ManU ná meistaradeildarsæti án Christano Ronaldo?

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

USA í karla, Indland í kvenna.

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Stranger Things

Mun Carlsen tefla heimsmeistaraeinvígi við Nepo á næsta ári?

Ég hef því miður ekki trú á því.

Minnistæðasta skák á Ólympíuskákmóti:

Viðureignin við Haítí í Khanty-Mansiysk árið 2010 er mjög eftirminnileg. Þetta var sama ár og hamfarirnar í Haítí áttu sér stað. Ég man að ég hugsaði alla skákina hversu lítilvæg skák væri í samanburði við það sem andstæðingar okkar höfðu gengið í gegnum nokkrum mánuðum áður. Það var ekki annað hægt en að fyllast aðdáunar.

Hvernig finnst þér indverskur matur?

Það fer eftir því hvar, hvernig og jafnvel hvort (!) hann sé eldaður 😊

Hverjum spáir þú sigri í forsetakosningum FIDE?  

Status quo hugsa ég.

Þekktasti Indverjinn sem þú veist um sem ekki er skákmaður?

Virat Kohli. Hann er ágætur í krikketi hef ég heyrt.

Með hverjum þremur (lífs eða lifnum) skákmönnum myndir þú vilja eiga kvöldmáltíð með og af hverju?

Ég fæ að fjölga þeim í fimm. Hörður Aron Hauksson, Birkir Karl Sigurðsson, Guðmundur Kristinn Lee, Guðmundur Kjartansson og Björgvin Ívarsson Schram. Það er fátt dýrmætara í þessu lífi en góð vinátta og myndi ég taka þennan hóp af drengjum fram yfir aðra skákmenn til að snæða með.

Ólympíufararnir

- Auglýsing -