Við höldum áfram með Ólympíufarann fyrir Ólympíuskákmótið sem hefst 16. september í Samarkand í Úsbekistan. Að þessu sinni kynnum við til leiks ungstirnið Guðrúnu Fanneyju Briem.

Nafn og hlutverk

Guðrún Fanney Briem, kvennalandsliðsmeðlimur

Gukesh eða Sindarov?

Sindarov mun vinna en ég held að Gukesh muni standa sig betur en flestir halda.

Félag?

Breiðablik

Kaffi eða te? Og ef kaffi – drekkur þú jafn mikla mjólk með kaffinu og Helgi Ólafsson?

Drekk ekki te eða kaffi, frekar vatn.

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?

Var að tefla í Portúgal og preppa mikið sjálf og í skólanum. Fer mikið í göngutúra og er mikið í ræktinni. Reyni að fá nóg af svefni.

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Arsenal?

Arsenal verður í öðru sæti..

Bókin á náttborðinu?

Norskar skólabækur.

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

Ég fór í fyrsta skipti fyrir tveimur árum svo þetta er annað skiptið.

Hvað er það fyrsta sem þú setur í ferðatöskuna?

Föt?

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Ratatouille.

Hversu leiðinleg er rapptónlist?

Hún er það ekki…

Þinn uppáhalds taflmaður og af hverju?

Fallega staðsettur riddari er bestur.

Hver var besti árangur Úsbeka á Ólympíuskákmóti áður en þeir unnu gullið árið 2022?

Hef enga hugmynd, topp 3?

Úsbekistan og Lichtenstein eru einu löndin sem eiga eitt sameiginlegt. Getur þú ímyndað þér hvað það er?

Enda bæði á n?

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Úsbekistan í opnum og Indland í kvenna.

Buettner, Rosenstein eða Turlov?

Hef enga skoðun á þessu, er að fara til að tefla.

Uppáhaldsskák?

Það eru nokkrar en örugglega þegar ég tefldi fyrstu góðu skákina mína á Chessmates 2025.

Hafa Úsbekar átt heimsmeistara í skák?

Veit ekki.

Hvað er skemmtilegasta/erfiðasta við 11 umferðir á Ólympíuskákmóti?

Þarf að gera mikla skólavinnu en hlakka vel til að tefla.

Helsta fyrirmynd í lífinu og/eða skák?

Hef ekki átt eina sérstaka fyrirmynd, kannski Emma Watson.

Þitt markmið á mótinu?

Hafa gaman og sýna öllum að ég get teflt vel.

Að lokum?

Áfram Ísland.

Ólympíufararnir

Opinn flokkur

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson
  2. IM Hilmir Freyr Heimisson
  3. GM Jóhann Hjartarson
  4. GM Hannes Hlífar Stefánsson
  5. GM Guðmundur Kjartansson
  6. GM/FST Helgi Ólafsson (liðsstjóri)

Kvennaflokkur

  1. WGM Lenka Ptácníková
  2. WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
  3. WFM Guðrún Fanney Briem
  4. WCM Iðunn Helgadóttir
  5. Hrund Hauksdóttir
  6. FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson (liðsstjóri)

Aðrir

- Auglýsing -