Ólympíuskákmótið verður sett í dag í Búdapest 10. september nk. og stendur til 22. september. Ísland sendir tvö lið til keppni og fram að móti kynnum við einn fulltrúa á dag. Nú kynnum við til leiks, forseta SÍ, Gunnar Björnsson, sem mætir á mótstað þann 17. september, sem fulltrúi Íslands á FIDE-þinginu sem hefst 18. september.
Gunnar notar líka tækifærið til að leysa úr ráðgátunum! Sumar þeirra hefur reyndar hinn fróði Aðalsteinn Thorarensen leyst á íslenskum skákmönnum á Facebook.
Nafn
Gunnar Björnsson
Kasparov eða Carlsen?
Kasparov hafði nú miklu skemmtilegri skákstíl. Það er samt viss unun að horfa á murkunarskákstíl MC. En já Kasparov er svarið fyrir mér.
Félag
Ég hef bara einu sinni skipt um skákfélag. Það var árið 1991 þegar ég ásamt nokkrum félögum mínum stofnuðum Helli. Engu síður hef ég verið í félögum sem hafa borið alls konar heiti! Er í Taflfélagi Garðabæjar og mun tefla með þeim á Íslandsmóti skákfélaga.
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Það er alltaf heilmikill undirbúningur fyrir Ólympíumót fyrir starfsmann SÍ. Fjáröflun og alls konar umstang. Tveir landsliðsmenn hættu t.d. í aðdraganda mótsins nú. Þó ólíkt þægilegra og ódýrara nú þegar mótið er haldið í Ungverjalandi en ekki í Indlandi. Það var dýrt, snúið og tímafrekst.
Göngutúrar, sund og hjólreiðar hafa verið mín hreyfing síðustu vikur/mánuði.
Hvaða Ungverjar hafa teflt heimsmeistaraeinvígi í skák?
Þegar þessi spurning var saman stóð ég í þeirri trú að þetta ætti um tvo Ungverja. Peter Leko og Susan Polgar. Judit Polgar tefldi aldrei einvígi því hún vildi ekki taka þátt í kvennakeppnum yfir höfuð.
Einhverjir svöruðu með nöfnunum Wilhelm Steinitz og Carl Schlechter. Báðir tilheyrðu þeir konungsdæminu Austurríki-Ungverjalandi. Þeir fæddust hins vegar í Vín og má frekar því skilgreina sem Austurríkismenn.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Man. City?
Mínir menn í Liverpool byrja vel og líta vel út! YNWA!
Hvaða Ungverji var upphafsmaður Búdapest-afbrigðisins í lok 19. aldar? Manstu eftir einhverjum Íslendingum sem hafa teflt það í gegnum tíðina?
Fyrsta þekkta skákin með Búdapest er frá 1896. Þeir stýrði Marorzy svörtu mönnunum.
Ýmsir menn hafa beitt Búdpest í gegnum tíðina. Má þar nefna Davíð Ólafsson, Snorra Bergsson, Sigurjón Sigurbjörnsson, Hrafn Jökulsson, Arnar Sigurmundsson og Gunnar Björnsson! Þekktasta íslenska Búdapest-skákin er sennilega sigurskák Stefáns Kristjánssonar gegn Héðni Steingrímssyni á Icelandic Open 2013.
Bókin á náttborðinu?
Ég verð að viðurkenna að ég fórnarlamb nútímans og er nánast hættur að lesa prentað efni – dottinn meira í það að hlusta. Les þó Arnald Indriðason ávallt á milli jóla og nýárs.
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Fór sem liðsstjóri á Ólympíuskákmótið 2004 í Mallorca. Síðan 2010 hef ég ávallt farið – yfirleitt sem FIDE-fulltrúi þótt ég hafi stundum gengt öðrum hlutverkum líka. Þetta er semsagt áttunda Ólympíuskákmótið mitt.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Við frúin erum að horfa á þýsku þættina Kleo á Netflix þessa dagana. Óhætt að mæla með. Stórskemmtilegir!
Hefurðu teflt á First Saturday-móti – eða öðru móti í Ungverjalandi?
Hef bara einu sinni komið til Ungverjalands – það var í sumar. Þá keyrði ég ásamt vini mínum frá Krakow til Zagreb. Gistum eina nótt við Balaton-vatn sem gríðarlega fallagur staður.
Hvernig finnst þér ungverks gúllassúpa?
Svolítið brenndur eftir mötuneytis ungverska gúllassúpu í Landsbankanum. Hlakka til orginalsins!
Hvaða Íslendingur tapaði fyrir tveimur Polgar-systranna á Reykjavíkurskákmótinu 1988?
Þegar þessi spurning var samin stóð ég í þeirri trú að þetta ætti bara um einn skákmann. Það eru hins vegar þrír skákmenn sem náðu þessu! Sigurður Daði Sigfússon og Snorri G. Bergsson töpuðu fyrir tveimur þeirra. Guðmundur Gíslason gerði hins vegar enn betur og tapaði fyrir öllum þremur!
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Held að Kanarnir vinni ekki opna flokkinn. Eru orðnir „pínu gamlir“ Spái Indverjum sigri í opna flokknum. Indverjar eru einnig líklegir í kvennaflokknum en ég spái sigursæli liði Georgíu sigri.
Donald eða Kamala?
Kamala Harris er u.þ.b. svona 17.000 sinnum betri valkostur en gamli maðurinn.
Besta skák sem þú hefur teflt á Ólympíuskákmóti eða annarri liðakeppni
Mín besta skák í liðakeppni og almennt er sigurskák gegn Jóni L. Árnasyni á Íslandsmóti skákfélaga 5. október 2008. Daginn eftir bað forsætisráðherra guð að blessa Ísland.
Ding eða Gukesh?
Gukesh er auðvitað miklu líklegri eins og staðan er núna. Ding sýndi hins vegar ótrúlegan karakter gegn Nepo og má ekki vanmeta.
Sterkasti skákmaður, lífs eða liðinn, af ungverskum ættum? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Það hlýtur að vera Bobby Fischer því faðir hans er talinn ungverskur.
Ef menn velja að sleppa honum mætti nefna þrjú nöfn (sleppi Austurríkis-mönnunum). Judit Polgar, sterkasta skákkona allra tíma, Peter Leko, sem er stigahæsti skákmaður Ungverja fyrr og síðar, og svo Lajos Portisch sem komst efst á stigalistann (2. sæti).
Helsta fyrirmynd í skák og af hverju?
Þegar ég var ungur las maður íslenskar skákbækur. Maður drakk í sig bókina hans Friðriks Ólafssonar, 50 valdar sóknarskákir, og bók Tals um einvígið gegn Botvinnik 1960. Síðan þá hef ég mest haldið upp á þessa tvo skákmenn.
Dáist af ungu kynslóðinni og afar öguðum og góðum vinnubrögðum þeirra sem eru til fyrirmyndar. Við eigum virkilega flotta unga skákmenn og tveir þeirra þegar komnir í landsliðið í opnum og stutt í þann þriðja! Sama þróun á sér stað í kvennaflokki.
Áfram Ísland!
- GM Vignir Vatnar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Guðmundur Kjartansson – opinn flokkur
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – opinn flokkur
- IM Hilmir Freyr Heimisson – opinn flokkur
- GM Helgi Áss Grétarsson – opinn flokkur
- GM/FST Helgi Ólafsson – liðsstjóri
- WGM Lenka Ptácníková – kvennaflokkur
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – kvennaflokkur
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – kvennaflokkur
- Iðunn Helgadóttir – kvennaflokkur
- Guðrún Fanney Briem – kvennaflokkur
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson – liðsstjóri
- IA/FM Róbert Lagerman – skákstjóri
- Gunnar Björnsson – FIDE-dindill














